Komdu nær minn kæri.
Sleiktu mig með orðum þínum,
Snertu mig með augum þínum,
Grænum, daufum.
Ég finn lykt líkama þíns.
Leyfðu henni að fylla mig,
Mig alla og meira og meira.
Hvert ferðu
þegar nóttin kemur?
Þú segir góða nótt við mig
á kvöldin, þegar við erum saman
En þegar sólin skín
Ertu blindur.
Ég veit að nóttin fer mer vel
En hugsar þú um mig?
Tek ég mikið pláss?
Lúmskur ertu andskoti.
Leikur að lyfjum
Og leyfir mér leikinn.
Hratt en bítandi bítur gleðin mig,
Gufar svo upp eins og reykur.
Nei, nú er nóg komið minn kæri
ég elskaði þig ekki
þótt þú þættist þekkja mig,
þótt þú þættist elska mig,
Eins og svo oft var ég að blekkja þig.
Segðu mér sannleikann siðlausi skratti.
Förum til fjandans og gerum það saman
saman.