Ég heyri hörð orð í háum róm
Ég lifi hvern dag svarta nótt
Ég er horfin, ég veit ei hvert
Hvergi ég finn mér frið
En þín von er mín von
Og þú veist að svo er
Ég er ófyrirséð óvægið rok
Þig dreymir hvern dag mín ævilok
Ég er Skaði, ég er skjóllaus heift
það er ekkert sem fær því breytt
því ég er það sem ég er
Og þú veist hver ég er
Ekkert traust, engin lausn
I gegnum lífið endalaust