Ég mun aldrei breyta mínu lífi fyrir þig
þótt deilum við okkar myrku leið
Ég mun ekki þegja lengur þögnin drepur mig
Dauðvona hverf ég í annan heim
Ófærir vegir opnast mér
Ófærðin leiðir mig langt af veg
Ég mun aldrei vekja mína ótta, liðna tíð
þótt inni í mér verði alltaf reimt
Ég mun aldrei aftur brenna að baki allar brýr
Kulinn þó kem ég að lokum heim
Ófærir vegir opnast mér
Ófærðin leiðir mig langt af veg
Ófærir vegir opnast mér
Ófærðin, ófærðin